mánudagur, apríl 10

Hmm... fann þennan lista á síðunni hans Gulla ákvað að nú væri kominn tími til þess að horfast í augu við gamlar syndir.

Hefur þú..
(x) reykt sígarettu
( ) klesst á bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
(x) verið ástfangin/n
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
(x) verið rekin/n
(x) lent í slagsmálum
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n ... jú reyndar af Vigni fógeta á laugardaginn var... hehe
(x) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi (ekki alvarlega sko)
(x) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu ... sami og blinda stefnumótið
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil ... jafnvel án snjós
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur ... næstum því á laugardaginn var... pörupiltar af verstu rumpulýðssort vildu koma höndum yfir hattinn minn
(x) verið misskilin/n
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi .... hjólaði yfir á rauðu ljósi um daginn og var stoppaður af löggunni... 600 króna (sænskar) sekt takk fyrir.
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
(x) dansað í tunglskininu ... telst nornaþing með?
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp .... rumpulýðurinn aftur ... þeim tókst að stela hattinum hans Vignis
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni ... og í snjónum
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
( ) fundist þú vera að deyja
( ) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik .... nú síðast á laugardaginn.... eins og þið sjálfsagt áttið ykkur á
( ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí ..... it's oh so quiet "sööösssss sössssss".... það var síðan slökkt á okkur
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér .... hemmmm... ekki gos en kókómjólk
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
( ) skrifað bréf til jólasveinsins
(x) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig


vá ok... hver bjó til þennan lista? svoldið spes

|